Hvassri sunnanátt spáð í dag

Í dag er búist við hvassri sunnanátt um vestan- og norðvestanvert landið. Hviður geta náð allt að 25-30 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi og í Borgarfirði. Síðdegis og í kvöld hvessir auk þess á Hellisheiði, í Hvalfirði og á Holtavörðuheiði, með hviðum um og yfir 25 m/s. „Varasamt ferðaveður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsbíla og tengivagna,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.