
Í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. úr safni
Hvalfjarðarsveit vill funda með Vegagerðinni um samgöngubætur
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að fela sveitarstjóra að óska eftir fundi með Vegagerðinni um ýmis brýn samgöngumál í sveitarfélaginu. Þar er meðal annars lögð áhersla á aukið umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum, samráð um fyrirhuguð Hvalfjarðargöng II og úrbætur á tengivegum í dreifbýli. Í minnisblaði sem Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri lagði fram á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku kemur fram að sveitarfélagið telji tímabært að hefja formlegt samráð við Vegagerðina um framtíðarskipulag samgangna í Hvalfjarðarsveit. Í umræddu minnisblaði voru kynntir þeir þættir sem leggja þarf megin áherslu á í samtali við yfirvöld samgöngumála er snerta vegakerfið í sveitarfélaginu.