
Óska eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir í sveitarfélaginu. Markmiðið er að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og efla samkennd í samfélaginu. Nú er opið fyrir tilnefningar í eftirfarandi fimm flokka, sem eru: Snyrtilegt bændabýli, falleg lóð við íbúðarhús, snyrtileg atvinnulóð, Samfélagsviðurkenning – fyrir framúrskarandi framlag til umhverfismála auk sérstakrar viðurkenningar fyrir snyrtilegt og vel hirt umhverfi. „Við hvetjum alla íbúa til að taka þátt og senda inn tilnefningar – hvort sem það er fyrir eigin lóð eða aðra sem þér finnst eiga skilið hrós. Skilafrestur tilnefninga er 4. Ágúst,“ segir í tilkynningu. Tilnefningar má skila inn í þjónustuver Borgarbyggðar, en við tilnefningu þarf að velja hvern flokk fyrir sig og smella svo á „bæta við nýrri hugmynd.“