
Kári og KFA skildu jöfn í fjörugum leik
Kári og KFA gerðu 2:2 jafntefli þegar liðin mættust í Akraneshöllinni á sunnudaginn. Leikurinn var jafn og spennandi þar sem heimamenn komust tvívegis yfir en gestirnir svöruðu í bæði skiptin. Matthías Daði Gunnarsson kom Kára yfir á 35. mínútu og staðan var 1:0 í hálfleik. KFA jafnaði síðar metin með marki Patreks Arons Grétarssonar á 58. mínútu leiksins, en á 65. mínútu kom Sigurjón Logi Kára aftur yfir. Gestirnir gáfust þó ekki upp og náðu öðru sinni að jafna metin áður en yfir lauk, en þar var á ferðinni Eggert Gunnþór Jónsson.