Einar Margeir með tvenn verðlaun

Einar Margeir Ágústsson stóð sig afar vel á Opna meistaramótinu í Lúxemborg sem fram fór dagana 10.–12. júlí. Hann vann til silfurverðlauna í 100 metra bringusundi og hafnaði í þriðja sæti í 50 metra bringusundi. Einar var einnig með besta tímann í undanrásum 200 metra bringusunds. Vegna þéttrar dagskrár á mótinu var hins vegar ákveðið að ekki yrði synt úrslitasund í greininni og því stóð undanrásartíminn sem lokaniðurstaða.