
Gámur undir málma til förgunar. Ljósm. Stykkishólmur
Hvetja til áframhaldandi hreinsunarátaks
Sveitarfélagið Stykkishólmur heldur áfram átaki sínu til að bæta umgengni á atvinnusvæðum og hefur nú komið fyrir gámi á Skipavíkursvæðinu þar sem eigendum lausamuna gefst kostur á að losa sig við járn og aðra málma. Átakið er framhald af hreinsunarverkefni sem ráðist var í á Reitarvegi fyrr á árinu og miðar að því að fegra umhverfið og stuðla að snyrtilegri og öruggari atvinnusvæðum.