Fréttir

true

Enn missa Skagamenn niður gott forskot

ÍA tapaði 3:2 fyrir KA í dramatískum leik í Bestu deild karla á Akureyri í gærkvöldi. Skagamenn komust tveimur mörkum yfir en heimamenn sneru leiknum sér í vil á síðasta hálftímanum og tryggðu sér sigur með síðustu spyrnu leiksins. Skagamenn byrjuðu vel og náðu tveggja marka forystu. Gísli Eyjólfsson og Rúnar Már Sigurjónsson voru þar…Lesa meira

true

Hvetja til áframhaldandi hreinsunarátaks

Sveitarfélagið Stykkishólmur heldur áfram átaki sínu til að bæta umgengni á atvinnusvæðum og hefur nú komið fyrir gámi á Skipavíkursvæðinu þar sem eigendum lausamuna gefst kostur á að losa sig við járn og aðra málma. Átakið er framhald af hreinsunarverkefni sem ráðist var í á Reitarvegi fyrr á árinu og miðar að því að fegra…Lesa meira

true

Ráðinn forstöðumaður íþrótta- og frístundamála

Helgi Óttarr Hafsteinsson hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns íþrótta- og frístundamála hjá Hvalfjarðarsveit og mun hefja störf í ágúst. Í starfinu mun Helgi Óttarr bera ábyrgð á faglegri forystu og þróun íþrótta- og frístundastarfs sveitarfélagsins auk reksturs Heiðarborgar, íþrótta- og samfélagsmiðstöðvar Hvalfjarðarsveitar. Helgi Óttarr er með tvær meistaragráður; annars vegar í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði…Lesa meira

true

Gott rekstrarár að baki hjá Faxaflóahöfnum

Í ársskýrslu Faxaflóahafna vegna 2025 kemur fram í máli Gunnars Tryggvasonar hafnarstjóra að árið hafi verið farsælt hjá fyrirtækinu. Faxaflóahafnir annast eins og kunnugt er rekstur hafna og hafnarsvæða á Akranesi, í Borgarnesi, á Grundartanga og í Reykjavík. Félagið er með aðalstarfsstöð í Reykjavík. Tekjur ársins námu rétt tæpum sjö milljörðum króna, sem er 7%…Lesa meira

true

Framkvæmdir á Stykkishólmsvegi og ástand hans

Ástand Stykkishólmsvegar hefur farið ört versnandi frá því um 1,5 kílómetra langur kafli var fræstur upp í vor vegna endurbyggingar vegarins. Vegurinn hefur verið ómalbikaður síðan og er nú orðinn mjög grófur, með djúpum holum sem valda því að ökumenn þurfa víða að draga verulega úr hraða til að forðast skemmdir á bifreiðum. Framkvæmdir við…Lesa meira

true

Birkifeti að ná sér á strik í Svínadalnum

Eftir fremur milt og aðgerðalítið veður í sumar virðist sem fiðrildið birkifeti sé að ná sér á strik á afmörkuðum svæðum á Vesturlandi. Í þéttum birkiskógi í Svínadal í Borgarfirði er farið að gæta brúnnar slikju á laufinu og þegar nánar er skoðað eru mörg laufblaðanna illa leikin þar sem lirfan hefur bókstaflega tæmt laufið.…Lesa meira

true

Heima í Hólmi haldin í þriðja sinn

Tónlistarhátíðin Heima í Hólmi var haldin í þriðja sinn í Stykkishólmi dagana 10. og 11. júlí. Hjördís Pálsdóttir hefur staðið fyrir hátíðinni frá upphafi og lagt áherslu á að skapa notalega tónlistarupplifun þar sem heimafólk og gestir geta notið fjölbreyttrar dagskrár í fallegu umhverfi bæjarins. Eitt af sérkennum hátíðarinnar er að tónleikarnir fara fram í…Lesa meira

true

Veðrið setti strik í dagskrá Sandara- og Rifsaragleði

Núna um helgina fór Sandara- og Rifsaragleði fram í Snæfellsbæ. Veðrið var ekki upp á sitt besta að þessu sinni, sunnan lægðir sem gengu yfir. Mótshaldarar og gestir gerðu þó sitt besta til þess að allir gætu skemmt sér vel. Nokkur atriði í dagskrá hátíðarinnar voru flutt í húsaskjól. Margt var í boði og dagskráin…Lesa meira

true

Ungmenni fegruðu nærumhverfið í Dalabyggð í sumar

Starfsemi vinnuskólans í Dalabyggð lauk í vikunni sem leið eftir annasamt sumar. Hópur ungmenna lagði sitt af mörkum við að fegra og snyrta nærumhverfi sitt. Með fjölbreyttum verkefnum hafa þau átt þátt í að bæta ásýnd sveitarfélagsins og skapa snyrtilegra umhverfi íbúum og gestum til ánægju. Í sumar sinntu þátttakendur meðal annars hreinsun og umhirðu…Lesa meira

true

LEB mótmælir komugjaldi í sjúkraþjálfun

Landssamband eldri borgara (LEB) hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er harðlega því að sett verði á komugjald í sjúkraþjálfun, eins og heilbrigðisráðherra hefur boðað frá 1. september næstkomandi. „Gjaldið, að upphæð 1.000 kr., gerir stórum hópi eldri borgara erfiðara að sækja þessa nauðsynlegu þjónustu. Sumir í þessum hópi þurfa á þjónustunni að…Lesa meira