
Hér má sjá hvernig ræktarlegur birkiskógur í landi Svarfhóls í Svínadal er að taka á sig brúnan lit. Myndin var tekin fyrr í dag. Ljósm. mm
Birkifeti að ná sér á strik í Svínadalnum
Eftir fremur milt og aðgerðalítið veður í sumar virðist sem fiðrildið birkifeti sé að ná sér á strik á afmörkuðum svæðum á Vesturlandi. Í þéttum birkiskógi í Svínadal í Borgarfirði er farið að gæta brúnnar slikju á laufinu og þegar nánar er skoðað eru mörg laufblaðanna illa leikin þar sem lirfan hefur bókstaflega tæmt laufið.