Á síðasta degi vinnuskólans var m.a. farið í siglingu. Ljósm. Dalabyggð

Ungmenni fegruðu nærumhverfið í Dalabyggð í sumar

Starfsemi vinnuskólans í Dalabyggð lauk í vikunni sem leið eftir annasamt sumar. Hópur ungmenna lagði sitt af mörkum við að fegra og snyrta nærumhverfi sitt. Með fjölbreyttum verkefnum hafa þau átt þátt í að bæta ásýnd sveitarfélagsins og skapa snyrtilegra umhverfi íbúum og gestum til ánægju.