Holóttur og grófur Stykkishólmsvegur reynir á ökumenn og bíla á meðan framkvæmdum stendur. Texti og mynd: Guðrún Svana Pétursdóttir

Framkvæmdir á Stykkishólmsvegi og ástand hans

Ástand Stykkishólmsvegar hefur farið ört versnandi frá því um 1,5 kílómetra langur kafli var fræstur upp í vor vegna endurbyggingar vegarins. Vegurinn hefur verið ómalbikaður síðan og er nú orðinn mjög grófur, með djúpum holum sem valda því að ökumenn þurfa víða að draga verulega úr hraða til að forðast skemmdir á bifreiðum.