Á síðasta ári var tekið í notkun endurbætt farmsvæði á Grundartanga. Ljósm. mm

Gott rekstrarár að baki hjá Faxaflóahöfnum

Í ársskýrslu Faxaflóahafna vegna 2025 kemur fram í máli Gunnars Tryggvasonar hafnarstjóra að árið hafi verið farsælt hjá fyrirtækinu. Faxaflóahafnir annast eins og kunnugt er rekstur hafna og hafnarsvæða á Akranesi, í Borgarnesi, á Grundartanga og í Reykjavík. Félagið er með aðalstarfsstöð í Reykjavík. Tekjur ársins námu rétt tæpum sjö milljörðum króna, sem er 7% umfram áætlun, og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir var 2.486 milljónir króna. Umfang sjávarútvegs í höfnum Faxaflóahafna 2025 hélst nokkuð stöðugt frá fyrra ári, þó var engri loðnu landað á Akranesi þetta ár.