Fjölmenni tók þátt í litahlaupinu. Texti og myndir: AF

Veðrið setti strik í dagskrá Sandara- og Rifsaragleði

Núna um helgina fór Sandara- og Rifsaragleði fram í Snæfellsbæ. Veðrið var ekki upp á sitt besta að þessu sinni, sunnan lægðir sem gengu yfir. Mótshaldarar og gestir gerðu þó sitt besta til þess að allir gætu skemmt sér vel. Nokkur atriði í dagskrá hátíðarinnar voru flutt í húsaskjól. Margt var í boði og dagskráin mjög fjölbreytt, en hún hófst á fimmtudag með listasýningu og bjórhlaupi og svo skemmti Eyþór Ingi í Röstinni.