Fréttir

true

Leirlistafélagið fagnar afmæli með sýningu í Norska húsinu

Sýningin Í samsæti hlutanna var opnuð í Norska húsinu í Stykkishólmi síðastliðinn föstudag í tilefni af 45 ára afmæli Leirlistafélagsins. Sýningin verður opin alla daga frá 11 til 17 og stendur til 9. ágúst. Alls taka 34 leirlistamenn þátt með verk sem fjalla um nytjahluti og hlutverk þeirra í daglegu lífi. Verkin endurspegla fjölbreyttar nálganir…Lesa meira

true

Jazz í Hallgrímskirkju á sunnudaginn

Jazztríó Sunnu Gunnlaugs spilar á næstu sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 12. júlí kl. 16:00. Tríóið hefur verið í framvarðasveit íslensks jazz um áratugaskeið. Þau hafa gefið út sex plötur og komið fram víða um heim. Tónlist þeirra fellir saman lýríska nálgun evrópsku senunnar við eldmóð hins bandaríska jazz á sérlega persónulegan máta og…Lesa meira

true

Sjöunda sæti og Ísland á leið á HM í bridds

Íslenska karlalandsliðið í bridds var rétt í þessu að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu, en mótið var spilað í Riga. Liðið spilaði afar örugglega á mótinu og náði sjöunda sæti, en það þýðir að það vann sér inn keppnisrétt á HM á næsta ári þar sem spilað verður um Bermúdaskálinu frægu.Lesa meira

true

Malbikað í stækkuðu hverfi

Í byrjun þessa mánaðar var unnið að malbikun Urðarmels sem er ný gata í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Á svæðinu er gert ráð fyrir blandaðri íbúðabyggð með einbýlishúsum, parhúsum og raðhúsum. Um er að ræða þrjár einbýlishúsalóðir, fjórar parhúsalóðir og fimm fjögurra íbúða raðhúsalóðir, eða samtals 12 lóðir fyrir þrjú einbýlishús og 28 íbúðir í par-…Lesa meira

true

Akranes Irish Open í pílu

Akranes Irish Open 2026 í pílu fór fram í keilusalnum við Vesturgötu um helgina. Þar kepptu íslenskir og erlendir pílukastarar í fjórum flokkum; WDF-opnum flokki karla, WDF-kvennaflokki, tvímenningskeppni og U18 flokki. Mótið bauð upp á fjölda spennandi viðureigna, góða frammistöðu og skemmtilega keppni frá upphafi til enda. Keppni í öllum flokkum var jöfn og skemmtileg…Lesa meira

true

Bjarki og Dýrið að gera það gott

Þriðja umferðin í Íslandsmótinu í torfæru for fram a Egilsstöðum síðasta laugardag. Alls mættu 24 keppendur til leiks, þar a meðal Dalamaðurinn Bjarki Reynisson frá Kjarlaksvöllum. Hann er þaulreyndir keppandi, byrjaði að keppa 2001 eða átta árum áður en yngsti keppandinn, Úlfur Pálmason, fæddist. Bjarki mætti með Dýrið og sýndi gríðarlega góð tilþrif í öllum…Lesa meira

true

Nýr flygill tekinn í notkun í Dalabúð

Síðastliðinn föstudag var nýr flygill formlega afhentur og tekinn í notkun í félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal. Söfnun fyrir hljóðfærinu var samstarfverkefni sem hefur verið í gangi síðustu mánuði undir yfirskriftinni „Nýr flygill í Dalabúð“. Verkefnið var sett af stað í tilefni af 50 ára afmæli tónlistarskólans í Dölunum sem nú er hluti af Auðarskóla. Var…Lesa meira

true

Fjallað um Harald konung harðráða

Fimmtudaginn 9. júlí kl. 20 býður Snorrastofa upp á kynningu á rannsóknarverkefni um Harald harðráða Sigurðarson, Noregskonungs, í bókhlöðu Snorrastofu. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, mun kynna verkefnið með nokkrum inngangsorðum, en fyrirlesari kvöldsins verður dr. Gianluca Raccagni, dósent í sagnfræði við Háskólann í Edinborg. Yfirskrift fyrirlesturs hans verður: „Harald Hardrada’s romantasy and beast slaying tales…Lesa meira

true

Fjölmennir og fjölbreyttir Írskir dagar á Akranesi – myndasyrpa

Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi hófst á mánudaginn í liðinni viku og lauk viku síðar. Þetta var í 27. skipti sem hátíðin er haldin. Dagskráin var býsna fjölbreytt og þétt alla vikuna. Veðrið framan af viku var misjafnt að gæðum, um tíma var rok og rigning, en eftir því sem leið á vikuna skánaði það…Lesa meira

true

Markaregn hjá Skallagrími

Skallagrímur tók á móti Herði frá Ísafirði í 8. umferð A-riðils í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu á laugardaginn. Skemmst er frá því að segja að Harðarmenn sáu aldrei til sólar í leiknum. Skallagrímsmenn léku á alls oddi og mörkunum bókstaflega rigndi inn. Leiknum lauk 9:0, Skallagrími í vil. Yfirburðir Skallagríms voru algjörir en fjögur…Lesa meira