Hér má sjá hluta þeirra 34 listamanna sem standa á bak við sýninguna. Ljósm. gsp

Leirlistafélagið fagnar afmæli með sýningu í Norska húsinu

Sýningin Í samsæti hlutanna var opnuð í Norska húsinu í Stykkishólmi síðastliðinn föstudag í tilefni af 45 ára afmæli Leirlistafélagsins. Sýningin verður opin alla daga frá 11 til 17 og stendur til 9. ágúst. Alls taka 34 leirlistamenn þátt með verk sem fjalla um nytjahluti og hlutverk þeirra í daglegu lífi. Verkin endurspegla fjölbreyttar nálganir listamannanna að leirnum sem efniviði og sýna hvernig nytjahlutir geta verið jafnt hagnýtir sem listrænir.