Stemning á Akratorgi. Hér er Villi vísindamaður að skemmta. Ljósm. ki

Fjölmennir og fjölbreyttir Írskir dagar á Akranesi – myndasyrpa

Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi hófst á mánudaginn í liðinni viku og lauk viku síðar. Þetta var í 27. skipti sem hátíðin er haldin. Dagskráin var býsna fjölbreytt og þétt alla vikuna. Veðrið framan af viku var misjafnt að gæðum, um tíma var rok og rigning, en eftir því sem leið á vikuna skánaði það og frá föstudegi til sunnudags var dásemdar veður fyrir hátíð af þessu tagi. Fjölmenni var í bænum; bæði íbúar og gestir. Flestir komu saman á brekkusöng á laugardagskvöldinu þar sem Hreimur og Magni stjórnuðu fjöldasöng. Talið er að um átta þúsund manns hafi mætt og nutu gestir tónlistar og veðurblíðunnar. Það var Club71 sem stóð fyrir brekkusöng, að þessu sinni í nítjánda sinn. Síðar um kvöldið var svo Lopapeysan á hafnarsvæðinu þar sem fimm til sex þúsund manns voru. Þessir fjölmennustu dagskrárliðir bæjarhátíðarinnar fóru vel fram að sögn viðburðastjóra og lögreglu.