
Akranes Irish Open í pílu
Akranes Irish Open 2026 í pílu fór fram í keilusalnum við Vesturgötu um helgina. Þar kepptu íslenskir og erlendir pílukastarar í fjórum flokkum; WDF-opnum flokki karla, WDF-kvennaflokki, tvímenningskeppni og U18 flokki. Mótið bauð upp á fjölda spennandi viðureigna, góða frammistöðu og skemmtilega keppni frá upphafi til enda. Keppni í öllum flokkum var jöfn og skemmtileg og mótið sýndi þann metnað sem lagður er í að skapa góða umgjörð fyrir pílukast á Akranesi.