
Sveinn Svavar og Elís Dofri skoruðu báðir þrennu í leiknum. Ljósm. Skallagrímur
Markaregn hjá Skallagrími
Skallagrímur tók á móti Herði frá Ísafirði í 8. umferð A-riðils í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu á laugardaginn. Skemmst er frá því að segja að Harðarmenn sáu aldrei til sólar í leiknum. Skallagrímsmenn léku á alls oddi og mörkunum bókstaflega rigndi inn. Leiknum lauk 9:0, Skallagrími í vil.