
Nýr flygill tekinn í notkun í Dalabúð
Síðastliðinn föstudag var nýr flygill formlega afhentur og tekinn í notkun í félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal. Söfnun fyrir hljóðfærinu var samstarfverkefni sem hefur verið í gangi síðustu mánuði undir yfirskriftinni „Nýr flygill í Dalabúð“. Verkefnið var sett af stað í tilefni af 50 ára afmæli tónlistarskólans í Dölunum sem nú er hluti af Auðarskóla. Var flygillinn vígður á glæsilegum tónleikum í Dalabúð þar sem fram komu Hallveig Rúnarsdóttir, Ólafur Rúnarsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Alvilda Elmarsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir.Frumkvæði að verkefninu átti Sigurbjörg Kristínardóttir, fyrrverandi tónlistarkennari og organisti, ásamt þeim Kristínu G. Ólafsdóttur og Ólafi Rúnarssyni. „Með óeigingjörnu framlagi fjölmargra einstaklinga, fyrirtækja og styrktaraðila tókst að safna fjármagni til kaupanna og fjáfesta í þessu glæsilega hljóðfæri sem nú prýðir Dalabúð,“ segir Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri.