Tilþrif hjá Bjarka og Dýrinu. Ljósm. Guðný Jóna Guðmarsdóttir

Bjarki og Dýrið að gera það gott

Þriðja umferðin í Íslandsmótinu í torfæru for fram a Egilsstöðum síðasta laugardag. Alls mættu 24 keppendur til leiks, þar a meðal Dalamaðurinn Bjarki Reynisson frá Kjarlaksvöllum. Hann er þaulreyndir keppandi, byrjaði að keppa 2001 eða átta árum áður en yngsti keppandinn, Úlfur Pálmason, fæddist.

Bjarki mætti með Dýrið og sýndi gríðarlega góð tilþrif í öllum brautum. Í lok dags sigraði Bjarki flokk sérútbúinna götubíla með 75 stiga forskoti á Gunnar Pálma Pétursson sem varð í öðru sæti. Bjarki heldur því áfram hefð sinni síðustu þriggja ára, sem er að sigra í þeim keppnum sem hann tekur þátt í.