
Jazz í Hallgrímskirkju á sunnudaginn
Jazztríó Sunnu Gunnlaugs spilar á næstu sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 12. júlí kl. 16:00. Tríóið hefur verið í framvarðasveit íslensks jazz um áratugaskeið. Þau hafa gefið út sex plötur og komið fram víða um heim. Tónlist þeirra fellir saman lýríska nálgun evrópsku senunnar við eldmóð hins bandaríska jazz á sérlega persónulegan máta og heillar áheyrendur með norrænni angurværð og gleði enda ber nýjasta albúmið titilinn Go Round Merry.
Tríóið skipa Sunna Gunnlaugs á píanó, Þorgrímur Jonsson bassaleikari og Scott McLemore á slagverk. Þessir tónleikar eru konfekt fyrir alla og ekki síst aðdáendur jazztónlistarinnar.
fréttatilkynning