Fréttir

true

Komu aflvana togara til bjargar

Rétt um klukkan 19 í gærkvöldi var áhöfnin á björgunarskipinu Sigurvin á Siglufirði kölluð út á hæsta forgangi þegar stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust boð frá togaranum Ottó N. Þorlákssyni frá Vestmannaeyjum um að skipið væri aflvana og hættulega nálægt landi á Siglufirði. Lega hafði ofhitnað og mikill reykur fylgdi því en enginn eldur. Rek skipsins breyttist…Lesa meira

true

Ásta Sjöfn ráðin skólastjóri Reykhólaskóla

Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Reykhólaskóla frá og með 1. ágúst næstkomandi. Tekur hún við starfinu af Önnu Margréti Tómasdóttur sem fer í starf skólastjóra Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit frá sama tíma. Ásta Sjöfn er með kennaramenntun frá Kennaraháskóla Íslands, rekstrarfræðimenntun frá Samvinnuháskólanum á Bifröst og með réttindi sem framreiðslumeistari og býr þar að…Lesa meira

true

Lýst eftir unglingspilti

Lögreglan á Vesturlandi lýsti seint í gærkvöldi eftir Cezary Kobiela, 15 ára dreng, sem fór frá Borgarnesi í gær með strætó suður til Reykjavíkur eða Akraness. „Cezary er um 178 cm á hæð, grannur og dökkhærður. Hann var klæddur í svarta úlpu með loðkraga og dökkar buxur. Þau sem vita eitthvað um ferðir Cezary eða…Lesa meira

true

Fjörutíu ár frá lóðarleigusamningi Gleym mér ei í Borgarnesi

Gróðrarstöðin Gleym mér í Borgarnesi er fjörutíu ára í dag, 1. júlí. „Fyrsta dag júlímánaðar 1986 mætti ég með samning um landleigu á hreppsskrifstofuna í Borgarnesi og fékk undirritaðan af Gísla Karlssyni sveitarstjóra, þá til fimmtíu ára. Samningurinn hefur verið endurnýjaður eftir það og má ég vera hér til níræðs að minnsta kosti,“ segir Sædís…Lesa meira

true

Dúóið Sycamore Tree í Hallgrímskirkju á sunnudaginn

Um síðustu helgi hófst árleg sumartónleikaröð í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Það var Kristján Kristjánsson, KK, sem söng og lék eigin tónlist og rúmlega 100 manns glöddust og táruðust yfir óviðjafnanlegum flutningi og ljúfum sögum sem KK töfraði fram. Á sunnudaginn 5. júlí kl. 16.00 verða næstu tónleikar í röðinni og nú er það dúóið Sycamore…Lesa meira

true

Hjúkrunarheimilið Höfði verður stækkað um sextíu rými

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Akraneskaupstaður og Hvalfjarðasveit skrifuðu í dag undir samkomulag um stækkun hjúkrunarheimilins Höfða við Sólmundarhöfða á Akranesi um allt að 60 hjúkrunarrými. Í dag eru 75 íbúar á Höfða, þar af tveir í skammtímarýmum. Hjúkrunarrýmum mun því fjölga um 80% þegar nýja heimilið verður tekið í notkun. Þörfin fyrir stækkun heimilisins er brýn,…Lesa meira

true

Háskólasamstæða orðin til

Samningur um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands var undirritaður á Hólum í Hjaltadal í gær. “Með undirrituninni hefst nýr kafli í íslensku háskólastarfi. Frá og með 1. júlí mun Háskóli Íslands starfa sem samstæðuháskóli og Háskólinn á Hólum verður aðildarháskóli undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum. Það voru Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Silja Bára…Lesa meira

true

Skallagrímur vann KFS með marki í uppbótatíma

KFS frá Vestamannaeyjum gerði góða ferð upp á „meginlandið“ er þeir mættu Skallagrími frá Borgarnesi í gær í sjöundu umferð 5. deildar karla, en þessi lið leika í A-riðlinum. Leikurinn fór fram á Skallagrímsvelli og hófst kl. 17:30, sem er óvenjulegur tími, en það helgast af því að leiktími var skipulagður út frá siglingaáætlun Herjólfs.…Lesa meira

true

Fílllinn í drekaherberginu sýndur á Írskum dögum

Gjörningaklúbburinn Martin Cooper er skipaður listamönnunum Láru Magnúsdóttur (Lolly) og Brynhildi Stefánsdóttur (Bryndreka). Klúbburinn sýnir innsetningarverk sitt „Fílinn í herberginu“ í Drekahellinum Stillholti 14 á Írskum dögum á Akranesi. Við vinnslu verksins fengu þær stöllur til liðs við sig feðgana Berg og Magnús Líndal og kvikmyndagerðarmanninn Þórð Helga Guðjónsson (Dodda). „Hver kannast ekki við að…Lesa meira

true

Sjálfvirk brautasláttuvél komin í Staðarsveitina

Í síðustu viku urðu kaflaskil í golfvallaumhirðu þegar Golfklúbbur Staðarsveitar tók í notkun fyrstu sjálfvirku brautasláttuvél landsins. „FJDynamics RCM01 brautaslátturóbotinn er sannarlega að slá í gegn á Snæfellsnesinu, (þótt kríurnar séu ekki alveg búnar að taka nýja starfsmanninn í sátt). Við hjá Agro óskum brautryðjendunum hjá Golfklúbbi Staðarsveitar innilega til hamingju með nýju vélina og…Lesa meira