
Dúóið Sycamore Tree í Hallgrímskirkju á sunnudaginn
Um síðustu helgi hófst árleg sumartónleikaröð í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Það var Kristján Kristjánsson, KK, sem söng og lék eigin tónlist og rúmlega 100 manns glöddust og táruðust yfir óviðjafnanlegum flutningi og ljúfum sögum sem KK töfraði fram. Á sunnudaginn 5. júlí kl. 16.00 verða næstu tónleikar í röðinni og nú er það dúóið Sycamore Tree sem tekur forskot á 10 ára afmælisfagnað sem haldinn verður í Hörpu í haust. Það eru Ágústa Eva Erlendsdóttir, söngkona og Gunnar Hilmarsson gítarleikari sem flytja eigin tónlist.