
Fjörutíu ár frá lóðarleigusamningi Gleym mér ei í Borgarnesi
Gróðrarstöðin Gleym mér í Borgarnesi er fjörutíu ára í dag, 1. júlí. „Fyrsta dag júlímánaðar 1986 mætti ég með samning um landleigu á hreppsskrifstofuna í Borgarnesi og fékk undirritaðan af Gísla Karlssyni sveitarstjóra, þá til fimmtíu ára. Samningurinn hefur verið endurnýjaður eftir það og má ég vera hér til níræðs að minnsta kosti,“ segir Sædís Guðlaugsdóttir garðyrkjufræðingur í samtali við Skessuhorn. „Hér var þá snautt land; skurður og mógrafir, en enginn gróður. Þetta land hef ég síðan ræktað og byggt upp á lóðinni hægt og rólega.“
Sædís verður á vaktinni í dag, eins og aðra daga. „Þetta er óvenjulegur búskapur að því leyti að árstekjurnar eru teknar inn á sex til átta vikna tímabili ár hvert. En á þessum tímamótum vil ég þakka öllu því góða fólk sem mér hefur fylgt allt frá upphafi og síðan fleiri bæst í hópinn með tímanum. Allt góðir einstaklingar sem ekki hafa sleppt hendinni af mér. Þetta fólk stendur mér næst, allt vinir mínir og/eða ættingjar. Þetta er ekki síst fólkið sem aldrei er nefnt. Ég segi því takk fyrir hjálpina,“ segir Sædís.
Í dag eru á Gróðrarstöðinni Gleym mér ei vel á annað þúsund tegundir plantna; einær og fjölær blóm, tré og runnar. Hluta þess tegundafjölda má sjá á meðfylgjandi nýlegum myndum af stöðinni. Í tilefni dagsins segist Sædís ekki verða með neinn sérstakan viðbúnað. „Ég mun taka á móti fólki og reyni að umfaðma alla og selja því blóm! Tek á móti knúsi og gef knús,“ segir Sædís að endingu.


