Samningurinn var undirritaður af Steinari Adolfssyni bæjarstjóra á Akranesi, Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra og Haraldi Benediktssyni oddvita Hvalfjarðarsveitar Hér gleðjast þau að undirritun lokinni fyrr í dag. Ljósm. mm

Hjúkrunarheimilið Höfði verður stækkað um sextíu rými

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Akraneskaupstaður og Hvalfjarðasveit skrifuðu í dag undir samkomulag um stækkun hjúkrunarheimilins Höfða við Sólmundarhöfða á Akranesi um allt að 60 hjúkrunarrými. Í dag eru 75 íbúar á Höfða, þar af tveir í skammtímarýmum. Hjúkrunarrýmum mun því fjölga um 80% þegar nýja heimilið verður tekið í notkun. Þörfin fyrir stækkun heimilisins er brýn, en nú eru um 60 manns á biðlista eftir plássi á Höfða.