
Skallagrímur vann KFS með marki í uppbótatíma
KFS frá Vestamannaeyjum gerði góða ferð upp á „meginlandið“ er þeir mættu Skallagrími frá Borgarnesi í gær í sjöundu umferð 5. deildar karla, en þessi lið leika í A-riðlinum. Leikurinn fór fram á Skallagrímsvelli og hófst kl. 17:30, sem er óvenjulegur tími, en það helgast af því að leiktími var skipulagður út frá siglingaáætlun Herjólfs. Eftir um 20 mínútna leik komust gestirnir yfir með marki Daníels Más Sigmarssonar. Annars var leikurinn fremur tíðindalítill og fátt markvert sem gerðist og staðan 1:0 fyrir KFS þegar gengið var til leikhlés.