Fílllinn í drekaherberginu sýndur á Írskum dögum

Gjörningaklúbburinn Martin Cooper er skipaður listamönnunum Láru Magnúsdóttur (Lolly) og Brynhildi Stefánsdóttur (Bryndreka). Klúbburinn sýnir innsetningarverk sitt „Fílinn í herberginu“ í Drekahellinum Stillholti 14 á Írskum dögum á Akranesi. Við vinnslu verksins fengu þær stöllur til liðs við sig feðgana Berg og Magnús Líndal og kvikmyndagerðarmanninn Þórð Helga Guðjónsson (Dodda). „Hver kannast ekki við að vera staddur í tíma og rúmi sem inniheldur augljóst vandamál eða erfiða staðreynd, eins konar risastóran, augljósan, þrúgandi fíl sem ekki nokkur vill taka að sér að ávarpa?  Þetta orðatiltæki „fíllinn í herberginu“ leiddi af sér þá spurningu hvað væri mögulegur fíll í nútíma samfélagi? Svar Bryndrekans og Lollýjar kemur fram í þessu höfundaverki þeirra, í formi myndbands, ljósmynda og ljóða,“ segir í tilkynningu.

Brynhildur og Lára kynntust árið 2019 við uppsetningu Litlu Hryllingsbúðarinnar, hvar Lára lék Auði og Brynhildur var aðstoðarleikstjóri. Síðan hafa þessar listakonur fengið þúsund hugmyndir og nú er ein af þessum hugmyndum orðin að veruleika. Að því tilefni vilja þær bjóða öllum að njóta þessa upphafsverks gjörningafélagsins Martin Cooper sem núna er komið til að vera. „Við hlökkum til þess að sjá ykkur á Írskum dögum í Drekahellinum, Stillholti 14, Akranesi, komið öll og hugleiðið fílinn með okkur. Er hægt að stöðva fílinn?“

Sýningin verður formlega opnuð miðvikudaginn 1. júlí klukkan 14 og verður opin á Írskum dögum.