
Háskólasamstæða orðin til
Samningur um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands var undirritaður á Hólum í Hjaltadal í gær. “Með undirrituninni hefst nýr kafli í íslensku háskólastarfi. Frá og með 1. júlí mun Háskóli Íslands starfa sem samstæðuháskóli og Háskólinn á Hólum verður aðildarháskóli undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum. Það voru Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, sem undirrituðu samninginn.