Fréttir

true

Í samsæti hlutanna nefnist sýning Leirlistarfélagsins

Sýningin Í samsæti hlutanna, afmælissýning Leirlistafélags Íslands í tilefni af 45 ára afmæli félagsins, var opnuð á HönnunarMars fyrr á þessu ári. Nú ferðast sýningin til Stykkishólms þar sem hún verður opnuð í Norska húsinu föstudaginn 3. júlí klukkan 17:00-19:00. Sýninguna prýða verk 34 leirlistamanna sem fást við gerð nytjahluta. „Leirmunir eru órjúfanlegur hluti hversdagslífsins.…Lesa meira

true

Spunanámskeið með Marianne Tó

Í nýmáluðu félagsheimili Fellsstrendinga, við hlið Staðarfells í Dölum, verður haldið spunanámskeið með Marianne Tó sunnudaginn 28. júní nk. frá kl. 11-17. Einungis 8-10 nemendur komast að og er þeim velkomið að koma með eigin snældur eða kamba ef það á, en kennarinn kemur með ull, snældur og ullarkamba. Námskeiðið er sex klukkutímar en það…Lesa meira

true

Nýr sveitarstjóri hlakkar til verkefnanna fram undan

Rætt við Unni Brá Konráðsdóttur sveitarstjóra í Borgarbyggð Meirihluti Borgarbyggðarlista og Sjálfstæðisflokks réði Unni Brá Konráðsdóttur fyrrverandi þingmann og forseta Alþingis í starf sveitarstjóra Borgarbyggðar. Unnur Brá er þegar sest í stól sveitarstjóra og er að leita að hentugu húsnæði fyrir sig og fjölskylduna. Henni líst afar vel á nýja starfið. Eins og tíðkast með…Lesa meira

true

Fjölmargir stigu of fast á pinnann

Í vikunni sem leið voru 98 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. 558 ökumenn að auki voru myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir að nota síma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað og einn var kærður fyrir að…Lesa meira

true

Landsliðsmaður í bridge og áhugamaður um brauðtertur

Spjallað við Birki Jón Jónsson bæjarstjóra Grundarfjaraðarbæjar Eftir að úrslit bæjarstjórnarkosninganna í Grundarfirði lágu fyrir að kvöldi 16. maí var ljóst að í stól bæjarstjóra myndir Birkir Jón Jónsson setjast. Blaðamaður Skessuhorns heyrði hljóðið í Birki en hann er nú í óða önn að kynnast nýju starfi og bæjarbúum, hefur fest kaup á húsi og…Lesa meira

true

Fjölbreytt hátíðahöld og aðrir viðburðir

Fjölmargt er framundan í lista,- menningar- og íþróttalífi á Vesturlandi. Í dag hefst t.d. bæjar- og fjölskylduhátíðin Brákarhátíð í Borgarnesi. Á laugardaginn fer fram Hafnarfjall Ultra hlaupið, en lagt er upp frá Borgarnesi og hlaupnar fjórar mislangar og krefjandi vegalengdir. Í gær hófst þriggja vikna alþjóðleg glerlistarhátíð á Hellissandi. Í Stykkishólmi verður Skotthúfan haldin á…Lesa meira

true

Ungt tónlistarfólk heldur tónleika í Dalíu

Fjórir ungir og efnilegir tónlistarmenn halda tónleika í Dalíu, Miðbraut 15 í Búðardal, föstudaginn 26. júní klukkan 20. Á efnisskránni verða klassísk söng- og hljóðfæraverk flutt af sópransöngkonunni Alvildu Eyvöru Elmarsdóttur, píanóleikurunum Erlendi Snæ Erlendssyni og Jakobi Arnari Baldurssyni og fiðluleikaranum Matthildi Traustadóttur. Alvilda Eyvör, sem er dóttir Elmars Gilbertssonar, stundar um þessar mundir nám…Lesa meira

true

Klippti á borða úr bræddu gleri

Í gær var alþjóðlega glerlistarhátíðin Glóandi jökull sett á Hellissandi. Sýningin mun standa til 19. júlí nk. Á henni er boðið upp á sýningar, glerblástur í rauntíma, fyrirlestra, gjörninga og vinnustofur þar sem gestum gefst kostur á að kynnast glerlist og prófa sjálfir að vinna með bráðið gler. Hjarta hátíðarinnar er færanlegur glerblástursofn, Niesenglass NG40,…Lesa meira

true

Sýningin Íslenskur landbúnaður verður í október

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.-11. október nk. Markmið sýningarinnar er að kynna íslenskan landbúnað og leiða saman fyrirtæki og einstaklinga sem starfa í atvinnugreininni. Einnig að kynna fyrir gestum hreinleika íslenskra landbúnaðarafurða og þá miklu tækni sem nú er til staðar í íslenskum búskap. Ólafur M. Jóhannesson hjá sýningarfyrirtækinu Ritsýn…Lesa meira

true

Söngdætur Akraness flytja óð til Írlands

Miðvikudaginn 1. júlí klukkan 20 munu Söngdætur Akraness halda tónleika í stóra tjaldinu á hátíðarsvæðinu við Akraneshöfn. Um er að ræða glæsilega tónlistarveislu sem nú er haldin þriðja árið í röð í tengslum við fjölskylduhátíðina Írska daga á Akranesi. Tónleikarnir nefnast Óður til Írlands og á efnisskránni er fjölbreytt keltnesk og írsk tónlist, allt frá…Lesa meira