Söngdætur Akraness. F.v. Ylfa Flosadóttir, Valgerður Jónsdóttir, Rakel Pálsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Hulda Gestsdóttir og Rósa Guðrún Sveinsdóttir. Ljósm. Ómar Vilhelmsson

Söngdætur Akraness flytja óð til Írlands

Miðvikudaginn 1. júlí klukkan 20 munu Söngdætur Akraness halda tónleika í stóra tjaldinu á hátíðarsvæðinu við Akraneshöfn. Um er að ræða glæsilega tónlistarveislu sem nú er haldin þriðja árið í röð í tengslum við fjölskylduhátíðina Írska daga á Akranesi. Tónleikarnir nefnast Óður til Írlands og á efnisskránni er fjölbreytt keltnesk og írsk tónlist, allt frá poppi og rokki til ættjarðarlaga. Söngkonunum til halds og traust er mögnuð hlómsveit undir stjórn Flosa Einarssonar tónlistarmanns. Ásamt honum verða í hljómsveitinni Ragnar Skúlason, Hjördís Tinna Pálmadóttir og Hrefna Berg Pétursdóttir sem öll spila á fiðlu; Jakob Grétar Sigurðsson á trommur, Sigurþór Þorgilsson á bassa og Eðvarð Lárusson á gítar. Halli Melló verður síðan sérstakur gestur, fer með gamanmál og syngur einnig. Ungir dansarar af Akranesi sem tilheyra danshópnum X12 munu koma fram.

„Óður til Írlands hefur verið fluttur við góðar undirtektir og við erum mjög stoltar af því að allir sem koma fram á tónleikunum eru Skagamenn. Það eru algjör forréttindi að Akranes búi yfir svo öflugu tónlistarfólki eins og raun ber vitni. Fjölbreyttur hópur fólks sem er tilbúið að leggja mikið á sig til að auðga menningarlífið. Gestir verða ekki sviknir af tónleikunum okkar á miðvikudaginn,“ segja þær stöllur í samtali við Skessuhorn.

Miðasala á Óð til Írlands er á tix.is og í verslun Eymundsson á Akranesi (með reiðufé). „Við hlökkum mikið til að flytja Óð til Írlands fyrir gesti okkar,“ segja Söngdætur Akraness.