Ungt tónlistarfólk heldur tónleika í Dalíu

Fjórir ungir og efnilegir tónlistarmenn halda tónleika í Dalíu, Miðbraut 15 í Búðardal, föstudaginn 26. júní klukkan 20. Á efnisskránni verða klassísk söng- og hljóðfæraverk flutt af sópransöngkonunni Alvildu Eyvöru Elmarsdóttur, píanóleikurunum Erlendi Snæ Erlendssyni og Jakobi Arnari Baldurssyni og fiðluleikaranum Matthildi Traustadóttur.