
Sýningin Íslenskur landbúnaður verður í október
Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.-11. október nk. Markmið sýningarinnar er að kynna íslenskan landbúnað og leiða saman fyrirtæki og einstaklinga sem starfa í atvinnugreininni. Einnig að kynna fyrir gestum hreinleika íslenskra landbúnaðarafurða og þá miklu tækni sem nú er til staðar í íslenskum búskap.