
Klippti á borða úr bræddu gleri
Í gær var alþjóðlega glerlistarhátíðin Glóandi jökull sett á Hellissandi. Sýningin mun standa til 19. júlí nk. Á henni er boðið upp á sýningar, glerblástur í rauntíma, fyrirlestra, gjörninga og vinnustofur þar sem gestum gefst kostur á að kynnast glerlist og prófa sjálfir að vinna með bráðið gler. Hjarta hátíðarinnar er færanlegur glerblástursofn, Niesenglass NG40, sem gerir lifandi glerblástur mögulegan á hverjum stað fyrir sig. Á opnunardegi hátíðarinnar var alþjóðleg samsýning opnuð með verkum listamanna frá Íslandi, Danmörku, Tékklandi, Sviss, Þýskalandi, Írlandi, Kanada og Bretlandi. Sýningarstjóri er heimamaðurinn Bjarni Sigurbjörnsson.
Þrír erlendir listamenn, Louise Lang, Laura Sonne Lund og Fiona Byrne, vinna hluta verka sinna við glerofninn á meðan á hátíðinni stendur og geta gestir fylgst með sköpunarferlinu. Auk þess verða opnar vinnustofur alla laugardaga þar sem almenningi býðst að prófa glerblástur undir leiðsögn listamanna. Að sögn skipuleggjenda er markmið hátíðarinnar að vekja athygli á gleri sem listmiðli og skapa vettvang þar sem samtímalist, handverk og náttúra Snæfellsness mætast.
Það var Sigursteinn Sigurðsson, menningarfulltrúi Vesturlands, sem fékk þann heiður að klippa á borða við opnun sýningarinnar. Borðinn var ekkert hefðbundinn, heldur gerður úr bræddu gleri. „Þið sem mig þekkið vitið að ég elska fagmennsku í listum og þarna var engin skortur á. Frábær setningardagur listahátíðar í listamannamekkanu Hellissandi. Skora ég á alla vini mína að kíkja á Snæfellsnesið og njóta listar sem er nóg af. Það er fullt af "gourmet" veitingastöðum og svo stendur náttúran alltaf fyrir sínu,“ sagði Sigursteinn.