Fjölbreytt hátíðahöld og aðrir viðburðir

Fjölmargt er framundan í lista,- menningar- og íþróttalífi á Vesturlandi. Í dag hefst t.d. bæjar- og fjölskylduhátíðin Brákarhátíð í Borgarnesi. Á laugardaginn fer fram Hafnarfjall Ultra hlaupið, en lagt er upp frá Borgarnesi og hlaupnar fjórar mislangar og krefjandi vegalengdir. Í gær hófst þriggja vikna alþjóðleg glerlistarhátíð á Hellissandi.