Fréttir

true

Fjölmargir stigu of fast á pinnann

Í vikunni sem leið voru 98 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. 558 ökumenn að auki voru myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir að nota síma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað og einn var kærður fyrir að…Lesa meira

true

Landsliðsmaður í bridge og áhugamaður um brauðtertur

Spjallað við Birki Jón Jónsson bæjarstjóra Grundarfjaraðarbæjar Eftir að úrslit bæjarstjórnarkosninganna í Grundarfirði lágu fyrir að kvöldi 16. maí var ljóst að í stól bæjarstjóra myndir Birkir Jón Jónsson setjast. Blaðamaður Skessuhorns heyrði hljóðið í Birki en hann er nú í óða önn að kynnast nýju starfi og bæjarbúum, hefur fest kaup á húsi og…Lesa meira

true

Fjölbreytt hátíðahöld og aðrir viðburðir

Fjölmargt er framundan í lista,- menningar- og íþróttalífi á Vesturlandi. Í dag hefst t.d. bæjar- og fjölskylduhátíðin Brákarhátíð í Borgarnesi. Á laugardaginn fer fram Hafnarfjall Ultra hlaupið, en lagt er upp frá Borgarnesi og hlaupnar fjórar mislangar og krefjandi vegalengdir. Í gær hófst þriggja vikna alþjóðleg glerlistarhátíð á Hellissandi. Í Stykkishólmi verður Skotthúfan haldin á…Lesa meira

true

Ungt tónlistarfólk heldur tónleika í Dalíu

Fjórir ungir og efnilegir tónlistarmenn halda tónleika í Dalíu, Miðbraut 15 í Búðardal, föstudaginn 26. júní klukkan 20. Á efnisskránni verða klassísk söng- og hljóðfæraverk flutt af sópransöngkonunni Alvildu Eyvöru Elmarsdóttur, píanóleikurunum Erlendi Snæ Erlendssyni og Jakobi Arnari Baldurssyni og fiðluleikaranum Matthildi Traustadóttur. Alvilda Eyvör, sem er dóttir Elmars Gilbertssonar, stundar um þessar mundir nám…Lesa meira

true

Klippti á borða úr bræddu gleri

Í gær var alþjóðlega glerlistarhátíðin Glóandi jökull sett á Hellissandi. Sýningin mun standa til 19. júlí nk. Á henni er boðið upp á sýningar, glerblástur í rauntíma, fyrirlestra, gjörninga og vinnustofur þar sem gestum gefst kostur á að kynnast glerlist og prófa sjálfir að vinna með bráðið gler. Hjarta hátíðarinnar er færanlegur glerblástursofn, Niesenglass NG40,…Lesa meira

true

Sýningin Íslenskur landbúnaður verður í október

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.-11. október nk. Markmið sýningarinnar er að kynna íslenskan landbúnað og leiða saman fyrirtæki og einstaklinga sem starfa í atvinnugreininni. Einnig að kynna fyrir gestum hreinleika íslenskra landbúnaðarafurða og þá miklu tækni sem nú er til staðar í íslenskum búskap. Ólafur M. Jóhannesson hjá sýningarfyrirtækinu Ritsýn…Lesa meira

true

Söngdætur Akraness flytja óð til Írlands

Miðvikudaginn 1. júlí klukkan 20 munu Söngdætur Akraness halda tónleika í stóra tjaldinu á hátíðarsvæðinu við Akraneshöfn. Um er að ræða glæsilega tónlistarveislu sem nú er haldin þriðja árið í röð í tengslum við fjölskylduhátíðina Írska daga á Akranesi. Tónleikarnir nefnast Óður til Írlands og á efnisskránni er fjölbreytt keltnesk og írsk tónlist, allt frá…Lesa meira

true

Hafnarfjall Ultra hlaupið á laugardaginn

Næstkomandi laugardag verður utan- og fjallvegahlaupið Hafnarfjall Ultra hlaupið í annað sinn. Í boði verða fjórar hlaupaleiðir: Hafnarfjall Tindur 15,08 km með 844 m hækkun; Hafnarfjall 7 tindar 23,87 km með 1.218 m hækkun; Hafnarfjall 7 tindar og dalir 36,20 km, 2.316 með hækkun og Hafnarfjall fjölskylduhlaup 2,39 km með 155 m hækkun. Það er…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í hluta Hvalfjarðarsveitar næstu nótt

Vegna tenginga á nýjum spennistöðvum verður rafmagnslaust í hluta Hvalfjarðarsveitar frá kl. 0:01 til kl. 04:00 aðfaranótt föstudagsins 26. júní. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð Rarik í síma 528-9000. Kort af svæðinu fylgir hér með. „Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu…Lesa meira

true

Laxá í Dölum opnuð og tveir laxar á land

„Við vorum að opna Laxá í Dölum og það veiddust tveir laxar. Arngrímur Egill Gunnarsson veiddi fyrsta fiskinn þetta sumarið,“ sagði Jón Þór Júlíusson. „Það veiddust tveir laxar; annar í Matarpolli og hinn í Neðri – Kistu,“ sagði Jón ennfremur. Hver áin af annarri er opnuð þessa dagana. Haukadalsá í Dölum hefur einnig verið opnuð…Lesa meira