Kristinn Óskar Sigmundsson og Sigurjón Ernir Sturluson, eftir að sá síðarnefndi var búinn að kasta mæðinni eftir hið magnaða hlaup sitt á síðasta ári. Ljósm. mm

Hafnarfjall Ultra hlaupið á laugardaginn

Næstkomandi laugardag verður utan- og fjallvegahlaupið Hafnarfjall Ultra hlaupið í annað sinn. Í boði verða fjórar hlaupaleiðir: Hafnarfjall Tindur 15,08 km með 844 m hækkun; Hafnarfjall 7 tindar 23,87 km með 1.218 m hækkun; Hafnarfjall 7 tindar og dalir 36,20 km, 2.316 með hækkun og Hafnarfjall fjölskylduhlaup 2,39 km með 155 m hækkun. Það er hlaupagikkurinn Sigurjón Ernir Sturluson sem á brautarmet karla frá síðasta ári, en hann hljóp leiðina á 3:50.43. Simona Vareikaite á brautarmet kvenna á 5:21:01.

Hlaupið fór í fyrsta skipti fram á síðasta ári og voru viðbrögð afar góð. Líkt og þá er mótið í dagskrá Brákarhátíðar sem hefst í dag og lýkur á sunnudag.

Hér má sjá lengstu hlaupaleiðina á laugardaginn