
Hátíðarhöld voru um allt land á Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Veður var ágætt en þó blés aðeins og jafnvel að féllu regndropar á sumum stöðum. Á Vesturlandi var fjölbreytt dagskrá skipulögð í sveitarfélögunum. Skrúðgöngur, lúðrablástur, skemmtiatriði, útnefning bæjarlistamanna, leiktæki fyrir börn og veitingasala, svo fátt eitt sé nefnt. Meðfylgjandi myndir tók tíðindafólk Skessuhorns á hátíðisdeginum. Skessuhorn…Lesa meira








