
Soffía Björg er Listamanneskja Borgarbyggðar
Við hátíðarhöld í Borgarnesi í gær á þjóðhátíðardaginn 17. júní var tilkynnt um val á Listamanneskju Borgarbyggðar 2026. Að þessu sinni er það Soffía Björg Óðinsdóttir söng- og myndlistarkona frá Einarsnesi. Soffía Björg er fædd og uppalin í Einarsnesi í Borgarhreppi. Hún hefur verið starfandi tónlistarkona frá árinu 2010. Í maí á þessu ári hélt hún svo málverkasýninguna Jaðarsjón í Safnahúsi Borgarfjarðar þar sem hún sýndi akrílverk úr ímyndaðri náttúru; fjöll, firði, fossa og hálendi úr hugarheimi listakonunnar.