
Kvennalið Snæfells verður ekki á stóra sviðinu í vetur
Stjórn meistaraflokks Snæfells í körfuboltanum hefur ákveðið að kvennalið félagsins verður ekki skráð til keppni í meistaraflokki á komandi tímabili. Ástæða þeirrar ákvörðunar er sú að of fáir leikmenn eru tiltækir til að halda úti samkeppnishæfu liði á næsta tímabili. „Ákvörðunin var tekin að vel ígrunduðu máli eftir að ýmsir möguleikar höfðu verið skoðaðir til að halda liðinu úti. Það er einlæg stefna stjórnarinnar að um verði að ræða tímabundinn dvala með það að markmiði að byggja upp sterkan grunn fyrir endurkomu liðsins,“ segir í tilkynningu frá félaginu.