
Sigga mætti með tvö hrossa sinna í Brákarhlíð
Það færist í vöxt að fólk komi með hross í heimsókn til íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Þeir gleðja íbúa gjarnan og vekja upp ljúfar minningar. Síðastliðinn fimmtudag mætti Sigríður Skúladóttir í Borgarnesi með hrossin Kulda og Nínu á hjúkrunarheimilið Brákarhlíð. Þessi heimsókn þeirra mæltist afar vel fyrir, vakti ánægju og gleði eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.