Angela Árnadóttir bæjarlistamaður Akraness 2026. Ljósm. akranes.is

Angela er bæjarlistamaður Akraness

Angela Árnadóttir myndlistarkennari í Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur verið útnefnd bæjarlistamaður Akraness fyrir árið 2026. Þetta var tilkynnt á hátíðarhöldum á Akratorgi á 17. júní. „Angela er afar vel að þessum verðlaunum komin og við vonum að þessi fjölhæfa listakona haldi áfram að lífga upp á bæinn með sinni einstöku nærveru og listsköpun,“ segir í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Angela flutti búferlum á Akranes árið 2021 ásamt Benedikt Kristjánssyni eiginmanni sínum og börnum. Hún hefur kennt myndlist í Grundaskóla, samið og leikstýrt jólaleikriti í skólanum, kennt þýsku, margmiðlun, listasögu, ljósmyndun og myndlist í Fjölbrautaskólanum, og haldið tvær myndlistasýningar.