
Undanfarna fjóra áratugi hafa íbúar í Hálsasveit, Flókadal og Reykholtsdal haft það fyrir sið að ríða til messu í Reykholti að morgni Þjóðhátíðardags. Á því var engin undatekning nú. Hér má sjá fríðan hóp fólks og hrossa ættuð frá Hofsstöðum. Fánaberi er Katrín Gísladóttir. Ljósm. Bryndís Geirsdóttir
Vestlendingar héldu upp á Þjóðhátíðardaginn – myndasyrpa
Hátíðarhöld voru um allt land á Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Veður var ágætt en þó blés aðeins og jafnvel að féllu regndropar á sumum stöðum. Á Vesturlandi var fjölbreytt dagskrá skipulögð í sveitarfélögunum. Skrúðgöngur, lúðrablástur, skemmtiatriði, útnefning bæjarlistamanna, leiktæki fyrir börn og veitingasala, svo fátt eitt sé nefnt. Meðfylgjandi myndir tók tíðindafólk Skessuhorns á hátíðisdeginum.