Farþegar um borð bragða á ferskum afurðum sjávarins. Texti og myndir: Guðrún Jónsdóttir

Fyrsta opna ferð Særúnar að sumrinu – myndasyrpa

Í gær fóru Sæferðir í Stykkishólmi í fyrstu opnu ferð sumarsins um Breiðafjarðareyjar. Blaðamaður Skessuhorns slóst með í för og tók nokkrar myndir. Lagt var upp í rjómablíðu og gestir nutu fugla- og náttúruskoðunar og smökkuðu á skelfiski sem veiddur var í ferðinni. Farið var til að mynda að Hvítabjarnarey þar sem sjá mátti sauðfé á beit með lömbum, en í sumum eyjum er fé útigangandi allan veturinn. Siglt er undir vörumerkinu Viking Sushi á skipinu Særúnu sem er tvíbytna og getur tekið allt að 115 farþega. Skipstjóri er Siggeir Pétursson nýr eigandi Sæferða sem nýverið fóru úr eigu Eimskipa. Foreldrar Siggeirs, þau Svanborg Siggeirsdóttir og Pétur Ágústsson stofnuðu fyrst til slíkra ferða árið 1986, ásamt Eyþóri bróður Péturs, þá undir heitinu Eyjaferðir. Í ferðinni nú var Lára Hrönn systir Siggeirs með honum í áhöfn ásamt Ægi Ólafssyni vélstjóra og hafa margir glaðst yfir endurkomu fjölskyldunnar að rekstrinum. Siggeir hyggst bjóða upp á ýmsar nýjungar, svo sem kvöldferðir og má sjá nánari upplýsingar um ferðirnar á vikingsushi.com