
Fulltrúar menningarnefndar og Leikfélagsins Laugu. Ljósm. Snæfellsbær
Leikfélagið Lauga hlaut menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar
Menningarnefnd Snæfellsbæjar veitti fulltrúum úr Leikfélaginu Laugu viðurkenningu við hátíðlega athöfn í Sjómannagarðinum í Ólafsvík í gær á 17. júní. Í yfirlýsingu menningarnefndar kemur fram að starf félagsins beri vitni um mikla elju, sköpunargáfu og ástríðu fyrir leiklist og er mikilvægur þáttur í að efla menningu og samfélagsanda í sveitarfélaginu.