Fréttir

true

Víkingur Ólafsvík átti góða viku

Víkingur Ólafsvík sigraði Magna frá Grenivík 3-1 í leik í annarri deildinni í gær. Spilað var á Ólafsvíkurvelli. Mörk Víkings gerðu Gabríel Þór Þórðarson, Ingvar Freyr Þorsteinsson og Asmer Begic. Magni jafnaði 1-1 en Víkingarnir bættu tveimur mörkum við eftir það og sigruðu næsta örugglega. Á miðvikudag í liðinni viku spilaði Víkingur við Þrótt í…Lesa meira

true

Skoðunardagur mótorhjóla og fornbíla

Það er jafnan hátíðisdagur þegar Frumherji í Borgarnesi býður eigendum mótorhjóla og fornbíla að mæta með tæki sín til skoðunar. Slíkur dagur var í einstakri sumarblíðu á föstudaginn. Grillaðar voru pylsur og boðið upp á veitingar í tilefni dagsins og nýttu margir sér það og ekki síður stundina til að spjalla. Sæmundur Jónsson og Brynja…Lesa meira

true

Heimildamynd um þegar Grundarfjörður varð til

Klukkan 16:30 á Þjóðhátíðardaginn 17. júní verður frumsýnd í Grundarfjarðarkirkju ný heimildamynd um tilurð Grundarfjarðarbæjar. Í henni er sagan sögð í myndum og tali en myndin nefnist Þorp verður til og fjallar um upphaf, þróun og sögu samfélagsins í Grundarfirði. Myndin er alfarið framleidd af heimafólki í samstarfi við Bæringsstofu og er um 20 mínútur…Lesa meira

true

Þannig mun ný Þjóðarhöll líta út

Komin er mynd á hvernig ný Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki í Laugardalnum í Reykjavík, mun líta út. Höllin á að mæta kröfum nútímans með fyrirmyndaraðstöðu fyrir landslið, íþróttafélög og almenning til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru. Þjóðarhöll ehf., fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar, hefur valið tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. að hönnun og byggingu mannvirkjanna. Auglýst var eftir…Lesa meira

true

Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar

Í gær kom björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson, sjöunda af nýjum björgunarskipum Landsbjargar, til heimahafnar á Vopnafirði. Tekið var á móti skipinu og áhöfn þess með kostum og kynjum á bryggjunni. Skipið er það sjöunda í nýsmíðaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Áður eru komin til landsins; Guðmundur í Tungu á Ísafirði, Ingibjörg á Höfn í Hornafirði, Björg í Rifi,…Lesa meira

true

Tekið hraustlega á því á aflraunamótinu Fjallkonunni

Það voru mikil átök sem áttu sér stað á Snæfellsnesi þegar sjö ungar konur kepptu í aflraunarkeppninni Fjallkonan 2026. Tvær þeirra duttu út vegna meiðsla. Keppnin hófst í Stykkishólmi á laugardag og var svo fram haldið í Ólafsvík seinni parts laugardags með einni keppnisgrein. Í gær var svo haldið áfram í Ólafsvík þar sem var…Lesa meira

true

Guðmundur Kristjánsson kaupir Þórsnes í Stykkishólmi

Gunnlaugur Karl Hreinsson hjá GPG fiskverkum á Húsavík festi árið 2004 kaup á sjávarútvegsfyrirtækinu Þórsnesi ehf. í Stykkishólmi og hefur átt stærstan hlut þess síðan. Einhverjum árum síðar kaupir Eggert Halldórsson framkvæmdastjóri 15% hlut í fyrirtækinu, en hann hefur stýrt því frá 2004. Nú er búið að ganga frá kaupum félags í eigu Guðmundar Kristjánssonar…Lesa meira

true

Ný Icewear verslun opnuð í Stykkishólmi

Ný Icewear verslun var opnuð í Stykkishólmi fimmtudaginn 11. júní. Verslunin er sú 35. í röðinni hjá fyrirtækinu og er staðsett við höfnina í því húsnæði þar sem ferðaþjónustufyrirtækið Sæferðir var áður til húsa. Undirbúningur gekk hratt fyrir sig en teymi frá Icewear hóf uppsetningu verslunarinnar síðastliðinn mánudag. Á fáum dögum var húsnæðinu breytt í…Lesa meira

true

Met þátttaka á Héðinsmótinu í bekkpressu

Héðinsmótið í bekkpressu var haldið í Íþróttahúsinu í Ólafsvík síðastliðinn laugardag og voru 18 keppendur mættir til leiks og keppt í fjórum flokkum. Fjölmargir áhorfendur mættu til að hvetja keppendur áfram og var mikill stemning og hvatningarhróp sem meðal annars átti stóran þátt í að Arek Lakomski sem keppti í +100 kílóa flokki setti mótsmet…Lesa meira

true

SVFR tekur við sölu veiðileyfa í Reykjadalsá

Stangveiðifélag Reykjavíkur og Veiðifélag Reykjadalsár í Borgarfirði hafa hafið samstarf um sölu veiðileyfa í ánni, en hún er tveggja stanga laxveiðiá sem nýlegu veiðihúsi. „Framundan eru jákvæðar breytingar sem miða að því að styrkja laxastofninn til framtíðar. Meðal annars verður dregið úr veiðiálagi, aukin áhersla lögð á fiskrækt og búsvæði seiða bætt,“ segir í tilkynningu.…Lesa meira