Svipmynd frá fyrri tíð. Ljósm. Bæringsstofa

Heimildamynd um þegar Grundarfjörður varð til

Klukkan 16:30 á Þjóðhátíðardaginn 17. júní verður frumsýnd í Grundarfjarðarkirkju ný heimildamynd um tilurð Grundarfjarðarbæjar. Í henni er sagan sögð í myndum og tali en myndin nefnist Þorp verður til og fjallar um upphaf, þróun og sögu samfélagsins í Grundarfirði. Myndin er alfarið framleidd af heimafólki í samstarfi við Bæringsstofu og er um 20 mínútur að lengd.

Frumsýningin er opin öllum, en tekið verður við frjálsum framlögum með millifærslu, rafrænum greiðslum eða peningum. Allur ágóði rennur til endurnýjunar á þaki Grundarfjarðarkirkju.