Hin ameríska Allý sigraði í keppninni með yfirburðum og er hér að hlaupa með 100 kílóa stein. Texti og myndir: AF

Tekið hraustlega á því á aflraunamótinu Fjallkonunni

Það voru mikil átök sem áttu sér stað á Snæfellsnesi þegar sjö ungar konur kepptu í aflraunarkeppninni Fjallkonan 2026. Tvær þeirra duttu út vegna meiðsla. Keppnin hófst í Stykkishólmi á laugardag og var svo fram haldið í Ólafsvík seinni parts laugardags með einni keppnisgrein. Í gær var svo haldið áfram í Ólafsvík þar sem var keppti í fjórum greinum af átta. Keppnin lauk svo á Lýsuhóli síðdegis í gær.