
Þannig mun ný Þjóðarhöll líta út
Komin er mynd á hvernig ný Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki í Laugardalnum í Reykjavík, mun líta út. Höllin á að mæta kröfum nútímans með fyrirmyndaraðstöðu fyrir landslið, íþróttafélög og almenning til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru. Þjóðarhöll ehf., fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar, hefur valið tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. að hönnun og byggingu mannvirkjanna.