Dagný Ósk Hermannsdóttir, verslunarstjóri Icewear verslunarinnar í Stykkishólmi og Ásta Líf Guðmundsdóttir, sem varð fyrsti viðskiptavinur verslunarinnar. Texti og myndir: Guðrún Svana Pétursdóttir fréttaritari

Ný Icewear verslun opnuð í Stykkishólmi

Ný Icewear verslun var opnuð í Stykkishólmi fimmtudaginn 11. júní. Verslunin er sú 35. í röðinni hjá fyrirtækinu og er staðsett við höfnina í því húsnæði þar sem ferðaþjónustufyrirtækið Sæferðir var áður til húsa. Undirbúningur gekk hratt fyrir sig en teymi frá Icewear hóf uppsetningu verslunarinnar síðastliðinn mánudag. Á fáum dögum var húsnæðinu breytt í glæsilegt verslunarrými með úrvali af fatnaði og útivistarvörum.