Siglt inn til Vopnafjarðar. Ljósm. Landsbjörg

Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar

Í gær kom björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson, sjöunda af nýjum björgunarskipum Landsbjargar, til heimahafnar á Vopnafirði. Tekið var á móti skipinu og áhöfn þess með kostum og kynjum á bryggjunni. Skipið er það sjöunda í nýsmíðaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Áður eru komin til landsins; Guðmundur í Tungu á Ísafirði, Ingibjörg á Höfn í Hornafirði, Björg í Rifi, Jóhannes Briem í Reykjavík, Sigurvin á Siglufirði og Þór í Vestmannaeyjum.