
Klettsfljót, lygn breiða ofan við brúna að Kletti, hefur löngum verið sá veiðistaður sem gefið hefur best í ánni. Þetta verður síðasta sumarið sem maðkaboxið mun sjást við ána.
SVFR tekur við sölu veiðileyfa í Reykjadalsá
Stangveiðifélag Reykjavíkur og Veiðifélag Reykjadalsár í Borgarfirði hafa hafið samstarf um sölu veiðileyfa í ánni, en hún er tveggja stanga laxveiðiá sem nýlegu veiðihúsi. „Framundan eru jákvæðar breytingar sem miða að því að styrkja laxastofninn til framtíðar. Meðal annars verður dregið úr veiðiálagi, aukin áhersla lögð á fiskrækt og búsvæði seiða bætt,“ segir í tilkynningu.